Leitarformúlan Vlookup
Til eru nokkrar leitarformúlur í Excel og er Vlookup formúlan sú sem Frú Excel notar hvað mest við vinnu sína. V-ið í orðinu stendur fyrir vertical á ensku, eða lóðrétt og leitar formúlan einungis til hægri við leitargildið. Þegar þú kemst upp á lagið með að nota þessa formúlu munt þú sjá hversu hentug og góð formúla Vlookup er.
Skoðum þetta aðeins nánar:
Finnum í hvaða stjörnumerki Denni er í. Denni er því leitargildið í reit J3 og við viljum fá niðurstöðuna í reit K3.
Eins og sést hér þá eru gögnin í dálki I7 til L17. En fyrsti dálkur gagnanna er númer 1 þó svo að nöfnin séu í dálki I í sjálfu skjalinu.
Þú gætir líka ákveðið að skoða hvaða stjörnumerki eða litur fylgir hvaða heimilisfangi í töflunni en þá væri fyrsti dálkur gagnanna dálkur J en þar eru heimilisföngin.
Skrifa athugasemd
Vilt þú taka þátt í umræðunni?Gjörðu svo vel :)