SUMIF
Sumif er hagnýt formúla sem frú Excel notar reglulega í vinnu sinni. Ef þú þarft að leggja saman tölur eftir ákveðnu skilyrði er hún frábær. Við ætlum að nota hana hér til að finna út fjölda stöðugilda í ónefndu fyrirtæki í bænum.
![](http://fruexcel.is/wp-content/uploads/Sumif-formula-2.png)
Hér fyrir neðan sérðu lista með nöfnum starfsfólks, deild sem það vinnur í og starfshlutfall. Í B dálki ætlum við að leita að „Einstaklingssvið“ sem er skilyrðið okkar og einungis að leggja saman starfshlufall í C dálki sem fellur að þessu skilyrði.
![](http://fruexcel.is/wp-content/uploads/Sumif-criteria-4-2-1030x235.png)
![](http://fruexcel.is/wp-content/uploads/sumif-mynd-texti-2.png)
Þegar þú skrifar formúluna beint í reitinn þar sem þú vilt fá niðurstöðuna þá birtist alltaf hjálparmynd beint fyrir neðan sem gott er að fara eftir.
Hér hefurðu svo niðurstöðurnar, er þetta ekki dásamlegt? 🙂
![](http://fruexcel.is/wp-content/uploads/Sumif-criteria-2.png)
Það er hægt að gera fleiri sniðuga hluti með Sumif.
- Það er hægt að leggja saman tölur undir eða yfir ákveðinni upphæð.
- Það er hægt að leggja saman allar tölur nema ákveðna upphæð, t.d. 13.500 kr. eins og í dæminu hér að neðan.
- Eða það er hægt að leggja saman einungis ákveðna upphæð.
Í þessu tilfelli notum við bara range og criteria, sleppum sum_range. Og við setjum skilyrðið alltaf í gæsalappir, ef við gleymum því þá virkar formúlan ekki.
![](http://fruexcel.is/wp-content/uploads/Sumif-criteria-larger-2-1030x133.png)
![](http://fruexcel.is/wp-content/uploads/Sumif-lappir-1-1030x211.png)
Nauðsynlegt er að setja skilyrðið í gæsalappir, formerkið og upphæðina.
![](http://fruexcel.is/wp-content/uploads/Sumif-larger-1-1030x195.png)
![](http://fruexcel.is/wp-content/uploads/Sumif-samtals-1030x186.png)
Sjá nánar í myndbandinu hér að neðan.
Gangi þér vel 🙂
Skrifa athugasemd
Vilt þú taka þátt í umræðunni?Gjörðu svo vel :)